Ég verð að segja að ég er aldeilis upp með mér yfir að hafa yfir höfuð fengið einhver viðbrögð við síðasta bloggi, takk, takk. Ég átti í einhverjum vandræðum með að pósta myndir en nú virðist það vera komið í lag.
Haustið er búið að vera gott eftir langt og gott sumar á Íslandi. Hulda kom í heimsókn á lok ágúst og Þóra systir og familía í lok september. Ég fíla mig bara vel í skólanum en nú er auðvitað sá tími sem allt gerist á sama tíma, geggjað stuð. Pétur líka á fullu þessa dagana, rosa duglegur strákurinn.
Við skruppum í helgarferð til Vermont ásamt nokkrum vinum og dvöldum í sumarhúsi pabba hans Ara (sjá myndir hér fyrir neðan). Það var mikið stuð, étið, spilað og drukkið. Pétur skrapp svo í veiðiferð ásamt Michael veiðifélaga sínum (skrítið að þeir koma aldrei heim með neinn fisk :-) um síðust helgi og nú vill hann fara strax aftur.
Við Pétur erum bæði byrjuð í portúgölsku-tímum til að undirbúa okkur fyrir væntanlega Angóla-dvöl á næsta ári þar sem Pétur ætlar að gera doktorsrannsóknina sína. Við erum að sjálfsögðu ekki á sama stigi, ég er alger byrjandi, en kennarinn talar samt bara portúgölsku allan tímann og það er merkilegt hvað maður skilur mikið bara út af frönskunni. Tímarnir eru kl. 6-9 á mánudagskvöldum og ég er alltaf gjörsamlega dauðuppgefin þegar ég kem heim, það tekur svo rosalega á að einbeita sér svona í þrjá tíma.
Læt þetta duga í bili,
D

Komin yfir landamærin til Vemont, The Green Mountain State, þar sem eru skógivaxin fjöll og góðir vegir...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home