Mikið rosalega er ég löt að blogga. Ætla nú ekki að fara að lofa neinni bót og betrun í þeim málum heldur bara sjá hvað setur. Það versta er að við erum líka svo löt við að taka myndir þannig að ég á engar nýjar til að setja inn. Í hvert einasta skipti sem við förum á snjóbretti eða á gönguskíði þá hugsa ég, "o af hverju erum við ekki með myndavélina!" Það er stundum svo ótrúlega fallegt útsýni yfir vötn og skóga á skíðasvæðunum og svo er alltaf fallegt upp í Mont-Royal líka, sérstaklega þar sem nú er allt á kafi í snjó. Það er búið að vera ágætisveður í vetur, bara nýlega hafa komið mjög kaldir dagar (hátt í 20 stiga frost).
Það er svo sem ekki mikið að frétta héðan, við reynum bæði að læra af kappi en gengur ekki nógu hratt hjá mér að mínu mati. Ég er í einum kúrsi sem tekur allt of mikinn tíma frá mastersverkefninu. En þetta mjakast. Það er margt spennandi framundan hjá okkur. Við vorum að panta okkur ferð til Vesturstrandarinnar í lok mars/byrjun apríl þegar ég þarf að vera búin að skila fyrsta drafti af verkefninu. Ætlum að fljúga til Vancouver og stoppa þar í nokkra daga og keyra svo niður til San Francisco og stoppa í Seattle og Portland (borgin sem ég er að skrifa um) og kannski fleiri stöðum á leiðinni. Svo koma foreldrar hans Péturs í heimsókn í viku þegar mamma hans verður sextug og svo koma Krissa og Kári í lok maí og verða hérna þegar ég útskrifast (vonandi) þann 28.
Segi ekki meira í bili þar til ég get sett inn nýjar myndir.
D

2 Comments:
Hef ekki kíkt á þig lengi en er forvitin - hvað ertu að skrifa um í lokaverkefni/sem kannski er einmitt búið um þessar mundir eða hvað??? ??? ??? Hrafnhildur vst ... mail to me please
Sæl Dóra
Var að fatta eitt rétt í þessu. Síðan ég sá nýjustu dönsku prinsessuna (í viðtali á RÚV) þá hefur það pirrað mig ótrúlega mikið að mér finnst hún líkjast einhverjum sem ég þekki.
Fattaði núna að það ert þú sem ert tvífarinn. Hún er algjörlega alveg eins og þú. Fáránlegt.
Kveðja af VST, GDG
Skrifa ummæli
<< Home