laugardagur, janúar 19, 2008

Hjónin vígaleg

Dóra og Serge á toppnum

Pési sæti

Gaman í lyftunni

Halló, halló

Erum búin að vera "heima" í Montreal í viku eftir að hafa átt góð jól "heima" á Íslandi og ég hef eytt mestöllum tímanum í flensu og aðra vitleysu en nú er allt á réttu róli. Fórum á gönguskíði í dag og erum á leið í tvö partý í kvöld. Fengum okkur sushi og hvítvín, sem er orðin hálfgerð hefð á laugardagskvöldum og ég er að hlusta á Mugiboogie meðan Pétur sturtar sig, alger snilld ;-)

Setti hér inn nokkrar snjóbrettamyndir frá því fyrir jól þegar allt var á kafi. Þegar við komum aftur út fyrir viku var hláka og búið að rigna heilmikið en nú er búið að snjóa aftur og góðar brettastundir í uppsiglingu.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com